Hornmark (HM)¶
Skilgreining¶
Skilgreining hugtaks
Raunverulegur staður í landi þar sem tvö eða fleiri eignarmörk mætast.
Nánari lýsing
Landamerkjapunktur sem táknar raunverulegan stað þar sem margar merkjalínur renna saman á landinu. Hornmark er mælipunktur og ber því öll eigindi mælipunkts.
Steinn á landamerkjum við girðingu.¶
Íslendingabók Ara fróða Þorgilssonar og Landnáma segja frá upphafi byggðar á Íslandi og hvernig land var numið. Þegar fyrstu mennirnir stigu hér á land í kringum 870 má segja að Ísland hafi verið einn stór almenningur. Smátt og smátt eignuðu menn sér hluta af landinu og fylgdu í þeim efnum ákveðnum hefðum um landnám. Mismunandi var hvernig landnámsmenn „mörkuðu” land sitt og í þeim efnum virðast jafnvel hafa gilt mismunandi reglur fyrir konur og karla, eins og sagt er frá í Hauksbók Landnámu. Um landnám kvenna gilti sú regla að þær máttu ekki nema meira land en þær gátu teymt tveggja vetra kvígu vorlangan dag, sólsetra á milli:
Ásbjorn hét maðr, sonr Heyjangrs-Bjarnar; hann andaðisk í Íslandshafi, þá er hann vildi út fara, en Þorgerðr kona hans fór út ok synir þeira. En þat var mælt, at kona skyldi eigi víðara nema land en leiða mætti kvígu tvævetra várlangan dag sólsetra í millm, hálfstalit naut ok haft vel. Því leiddi Þorgerðr kvígu sína undan Tóptafelli, skammt frá Kvíá suðr ok í Kiðjaklett hjá Jokulsfelli fyrir vestan. Þorgerðr nam því land um allt Ingólfshofðahverfi á millm Kvíár og Jokulsár ok bjó at Sandfelli.
(Landnámabók, Íslenzk fornrit I, Jakob Benediktsson gaf út, Hið íslenzka fornritafélag, Reykjavík 1968, bls. 321.)
Ingólfur Arnarson lætur reisa öndvegissúlur sínar. Málverk eftir Johan Peter Raadsig, Ingolf tager Island i besiddelse, 1850.¶
Um karlana gilti sú regla að enginn skyldi nema stærra land en hann gat ferðast um með eldi ásamt skipverjum sínum á einum degi:
Þeim monnum, er síðar kómu út, þóttu hinir numit hafa of víða land, er fyrri kómu, en á þat sætti Haraldr konungr þá hinn hárfagri, at engi skyldi víðara nema en hann mætti eldi yfir fara á degi með skipverjum sínum. Menn skyldu eld gera, þá er sól væri í austri; þar skyldi gera aðra reyki, svá at hvára sæi frá oðrum, en þeir eldar, er gjorvir váru, þá er sól var í austru, skyldi brenna til nætr; síðan skyldu þeir ganga til þess, er sól væri í vestri, ok gera þar aðra elda.
(Landnámabók, Íslenzk fornrit I, Jakob Benediktsson gaf út, Hið íslenzka fornritafélag, Reykjavík 1968, bls. 337, 339.)
Með því að kveikja elda á landamerkjum urðu eftir trékol sem varðveittust lengi sem jarteikn um staðsetningu þeirra. Enn í dag eru svonefndar kolaþúfur algeng örnefni í landamerkjalýsingum og hugsanlegt að þessi siður hafi haldist allt frá landnámi. Bent hefur verið á að hlutverk eldsins við afmörkun lands hafi einnig getað verið af trúarlegum toga, þar sem margt virðist benda til þess að landnámsmenn hafi álitið landið lifandi eða byggt ósýnilegum verum sem gættu þess. Hlutverk eldsins væri því hvort tveggja að helga sér landið og að vinna hylli þeirra vætta sem þar bjuggu. Eins virðist skipta máli með hvaða hætti menn mörkuðu landnám og jafnvel hafi það einnig haft trúarlega þýðingu. Hugmynd um þetta má t.a.m. finna í frásögn af landnámi Einars Þorgeirssonar í Öxarfirði.
Kolþúfur eru manngerðar þúfur sem meðal annars mörkuðu skil slægjulanda. Ragnhildur Helga Jónsdóttir, Bjarni Guðmundsson og Þorkell Fjelsted, Plógur 1, Nýting flæðiengja í Borgarfirði: verkhættir og vinnubrögð á 20. öld, ritröð Landbúnaðarsafns Íslands, Hvanneyri 2012, bls. 7.¶
Þá kaupir Einarr í skipi með bræðrum tveimr, Vestmanni ok Vémundi; þeir fóru til Íslands ok sigldu fyrir norðan landit ok vestr um Sléttu í fjorðinn. Þeir settu øxi í Reistargnúp ok kölluðu því Øxarfjorð; þeir settu orn upp fyrir vestan ok kolluðu þar Arnarþúfu; en í þriðja stað settu þeir kross; þar nefndu þeir Krossás. Svá helguðu þeir sér allan Øxarfjorð.
(Landnámabók, Íslenzk fornrit I, Jakob Benediktsson gaf út, Hið íslenzka fornritafélag, Reykjavík 1968, bls. 284-285.)
Frásögnin greinir frá því að landnámsmennirnir hafi notast við margvísleg úrræði til þess að merkja sér landið. Jarðkrossar (í Jónsbók nefndir lýrittarsteinar) voru algengir, sem endurspeglast víða í örnefnum þar sem landamerki lágu um, sbr. Krossá, Krossanes o.fl. Þó virðist það hafa skipt máli hvernig menn merktu lönd sín, því dæmi eru um að menn hafi verið hraktir af löndum sínum vegna þess að þeir fóru ekki eftir hefðum um landnám. Dæmi um það er þegar Náttfari var hrakinn af landnámi sínu í Reykjadal, en hann hafði merkt sér það með því að marka í tré: „Náttfari, er með Garðari hafði út farit, eignaði sér áðr Reykjadal ok hafði merkt á viðum, en Eyvindr rak hann brott.” Hugsanlega hefur þessi landnámsaðferð Náttfara ekki talist rétt og því réttlætanlegt að flæma hann á brott. Þó ber að hafa í huga að Náttfari var af þrælakyni og því skör lægri en aðrir í samfélagi víkinga á þessum tíma.
Steinn á landamerkjum.¶
Dæmi um merki
Varða, merkjateinn, merkjahæll, fjallstoppur, steinn, skurðendi, ós, kolaþúfa, kolavarða, jarðkross (lýrittarsteinn) o.s.frv.
Kröfur
Það þarf að vera hægt að rekja breytingar aftur í tímann.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti hugtaks |
Hornmark |
Skammstöfun hugtaks |
HM |
Eigindi¶
Hornmarksnúmer¶
Skilgreining eigindis
Einkvæmt, upplýsingalaust auðkenni hornmarks.
Nánari Lýsing
Aðallykill til að auðkenna hornmark á einkvæman hátt.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti |
HornmarkNr |
Stuttnefni |
Hmnr |
Gagnatýpa |
|
Dæmi |
20457 |
Hópur |
Auðkenni |
Varðreglur (guards) |
Hornmarksnúmer verður að vera hærra en 0. |
Mælipunktsnúmer¶
Skilgreining eigindis
Öll hornmörk eru mælipunktar; tengir við mælipunktsgögn.
Nánari Lýsing
Tengir hornmark við mælipunkt.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti |
MptMaelipunkturNr |
Gagnatýpa |
|
Dæmi |
1234 |
Hópur |
Auðkenni |
Varðreglur (guards) |
Mælipunktsnúmer verður að vera hærra en 0. |
Tegund marks¶
Skilgreining eigindis
Tegund marks: 1 = Orðfast, 2 = Staðfast, 3 = Breytileg.
Nánari Lýsing
Flokkar tegund hornmarks. Tegund marks segir til um hvers eðlis hornmarkið er, tilgreinir erfðavensl og ákveður hvaða skráningaratriði eru skráð fyrir viðkomandi tegund hornmarks.
Orðfast (1): Hornmark sem er skilgreint með vísun í áþreifanlegan og raunverulegan hlut. Uppmæling slíks hornmarks er ávallt nálgun á raunveruleikanum en ekki raunveruleikinn sjálfur, þar sem endurteknar mælingar geta skilað ólíkum niðurstöðum. Réttleiki kerfisins byggist á því að mældur punktur sé sem næstur þeim hlut sem mældur er. Dæmi: fjallstindur, árfarvegur, skurður, merkjateinn, mörk milli jarða út í sjó.
Staðfast (2): Hornmark sem á upphaf sitt og skilgreiningu í útmælingu en hefur ekki nauðsynlega vísun í áþreifanlegan hlut. Markið er ekki áþreifanlegt og því þarf alltaf mælingu til að staðsetja það í raunveruleikanum. Réttleiki kerfisins byggist á því að girðingar og staurar í raunveruleikanum séu sem næst mældu hornmarki. Dæmi: lóðir í þéttbýli.
Breytileg (3)
Staðlaðar upplýsingar
Heiti |
TegundMarksFl |
Stuttnefni |
Tegmfl |
Gagnatýpa |
|
Dæmi |
1 |
Hópur |
Eiginleikar |
Varðreglur (guards) |
Tegund marks verður að vera 1, 2 eða 3. |
Kennileiti¶
Skilgreining eigindis
Sérkennilegt einkenni í landinu þar sem hægt er að rata og finna áttir, svo sem varða, steinn, útsýnisstaður, foss.
Nánari Lýsing
Lýsir kennileiti hornmarks í landi, þ.e. við hvað hornmarkið er kennt. Dæmi: varða, steinn, sjónlending, vatnsfall.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti |
Kennileiti |
Stuttnefni |
Hm_Ken |
Gagnatýpa |
|
Dæmi |
Varða |
Hópur |
Eiginleikar |
Varðreglur (guards) |
Textareitur skal styðja fjöltyngdan texta og sérstafi. |
Kennileiti flokkur¶
Skilgreining eigindis
Flokkunarkerfi sem tengist kennileitatöflu.
Nánari Lýsing
Flokkar tegund kennileitis.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti |
KennileitiFl |
Gagnatýpa |
|
Dæmi |
3 |
Hópur |
Eiginleikar |
Vensl¶
Hornmark → Maelipunktur¶
Skilgreining vensla
Hornmark er raunverulegur staður sem er mældur sem mælipunktur.
Tegund vensla: Stefnutenging (Directed Association)
Staðlaðar upplýsingar
Vensl (kind) |
|
Frá (source) |
Landeignaskra::Hornmark |
Til (target) |
Landeignaskra::Maelipunktur |
Stefna (navigability) |
Hornmark → Maelipunktur |
Hugtakalíkön