Mat¶
Skilgreining¶
Skilgreining hugtaks
Mat er gildi sem leggur mat á tiltekið matsandlag sem fundið hefur verið með því að beita tiltekinni matsaðferð.
Nánari lýsing
Mat er niðurstaða útreiknings matsaðferðar og segir til um tiltekinn eiginleika matsandlags, svo sem verðgildi þess eða kolefnisspor. Matseining varðveitir það mat sem hún reiknaði síðast. Mat er tölugildi með einingu, til dæmis krónur, krónur á fermetra eða kolefnisígildi (kgCO2e), og einingin ræðst af matsaðferðinni. Reikniverk skilar meiru en einu gildi. Með matinu fylgja frekari niðurstöður: sundurliðun mats og aðrar niðurstöður reikniverks, svo sem afskrifað endurstofnsverð og förgunarkostnaður. Matsaðferð skilgreinir hvaða frekari niðurstöður hún skilar. Þær varðveitast með matinu svo matsgerð geti skýrt hvernig matið varð til. Dæmi: matseining brunabótamats skilar brunabótamati byggingaráfanga í ISK sem mati, og sundurliðun þess á hverja rekstrareiningu byggingaráfangans sem frekari niðurstöðu. Matsandlag er það sem metið er. Matsandlag getur verið til dæmis notkunareining úr umdæmi Mannvirkjaskrár eða Fasteign úr Fasteignaskrá (Umdæmi Landeignaskrár).
Staðlaðar upplýsingar
Heiti hugtaks |
Mat |
Eigindi¶
Kerfisauðkenni¶
Skilgreining eigindis
Kerfisauðkenni mats.
Nánari Lýsing
Innri lykill.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti |
MatId |
Gagnatýpa |
|
Dæmi |
10245 |
Varðreglur (guards) |
Upplýsingalaust auðkenni. Heiltala > 0 |
Gildi¶
Skilgreining eigindis
Tölugildi mats.
Nánari Lýsing
Niðurstaða reikniverks matsaðferðar.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti |
Gildi |
Gagnatýpa |
|
Dæmi |
48350000 |
Eining¶
Skilgreining eigindis
Eining mats. Sama eining og matsaðferðin sem reiknaði matið.
Nánari Lýsing
Eining segir hvort mat sé sambærilegt við annað mat.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti |
Eining |
Gagnatýpa |
|
Dæmi |
ISK |
Matsdagsetning¶
Skilgreining eigindis
Hvenær matið var reiknað.
Nánari Lýsing
Til að vita á hvaða tímapunkti matið byggir.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti |
Matsdagsetning |
Gagnatýpa |
|
Dæmi |
2026-05-27T14:02:00Z |
Hugtakalíkön