Skiki (SKI)

@startuml
!include /build/docs/_plantuml_styles/concept_name.iuml
class "Skiki\n<i>Skiki (SKI)</i>"
@enduml

Skilgreining

Skilgreining hugtaks

Skiki er landfræðilega afmarkaður hluti lands. Safn allra skika þekur allt Ísland án skörunar eða bils á milli.

Nánari lýsing

Viðfangsefni skráningar skika er að afmarka land til skráningar landeigna. Skiki getur ýmist verið í séreign landeignar eða í sameign margra. Eins eru dæmi um skika sem engar landeignir eiga tilkall til. Slíkir skikar byggja mögulega á heimildum sem ekki er að finna í fasteignaskrá eða þinglýsingu, eða einfaldlega á skorti á heimildum, þ.e. þeir afmarka svæði þar sem engar heimildir eru til um eignarhald á landi.

Sagt er að Jónas Hallgrímsson (1807-1845) hafi fyrstur manna notað orðið landskiki yfir afmarkaðan hluta lands. Hér er hugtakið einfaldað í skika, upphaflega sem þýðing á ensku hugtökunum land parcel og land lot.

Tvær jarðir og fjórir skikar, A til D, á loftmynd og í skýringarmynd

Tvær jarðir og fjórir skikar, A-D. Skiki B er í sameign beggja jarða; skikar A, C og D eru í séreign. Staðföng vísa í skika.

Afmörkun skika

  • Ef þess er kostur miðast afmörkun skika við grannfræðilega skilgreind eignamörk.

  • Ef það dugar ekki sækir skikinn afmörkun sína í bráðabirgðaskráningu sem lýtur ekki grannfræðilegum reglum, t.d. eldri skráningu og gögn frá sveitarfélögum.

  • Skiki getur jafnframt haft enga geómetríu. Í þeim tilvikum er skikinn óafmarkaður og kallast núllskiki.

  • Ef landeign á hlutdeild í núllskika telst hún ekki að fullu afmörkuð. Ef hún á enga hlutdeild í núllskika telst hún að fullu afmörkuð. Gæði afmörkunar fara þá eftir því hvort hún er sótt með grannfræðilegum hætti eða ekki, og loks eftir nákvæmni mælinga.

Dæmi

Jörðin Furðustrandir er samsett úr þremur skikum. Einn skiki afmarkast af þjóðveginum og niður að sjó. Annar skiki eru heimatúnin í kringum bæjarhúsin, ofan við þjóðveg og upp að fjallsgirðingu. Þriðji skikinn er ofan við fjallsgirðingu og er í sameign með nærliggjandi jörðum.

Kröfur

  • Skiki veit lítið annað en auðkenni sitt, skikanúmer, og að hann sé skilgreindur grannfræðilegur flötur. Hann getur spurt hvað hann er stór, hver afmörkun hans er, ef hún hefur verið skilgreind, og aflað upplýsinga um nákvæmni. Eins hvort hann sé séreignarskiki, sameignarskiki eða eitthvað annað.

  • Krafa er um söguskráningu, þannig að hægt sé að sækja skráningu skika aftur í tímann í samhengi við grannfræðilega afmörkun og skráningu landeigna.

  • Möguleg krafa er að hægt sé að auðkenna skika með kerfisbundnum hætti innan landeigna, t.d. L123456/1, L123456/2 og L123456/sameign_315818.

Virkni

  • Sækja afmörkun skika. Skilar geómetríu.

  • Sækja mælda stærð skika. Skilar rauntölu.

  • Sækja áætlaða nákvæmni skika. Skilar rauntölu.

  • Sækja upplýsingar um hvort skiki er í séreign, sameign eða óráðstafaður.

Staðlaðar upplýsingar

Heiti hugtaks

Skiki

Skammstöfun hugtaks

SKI

Eigindi

@startuml
!include /build/docs/_plantuml_styles/concept_properties.iuml

class "Skiki" {
  <color:$BULLET_COLOR>$BULLET_CHAR</color> **Skikanúmer**  [key, unique, opaque, auto, required, system]
  <color:transparent>$BULLET_CHAR</color> SkikiId : int64 
}
@enduml


Skikanúmer

Skilgreining eigindis

Einkvæmt, upplýsingalaust auðkenni skika.

Nánari Lýsing

Aðallykill til að auðkenna skika á einkvæman hátt.

Staðlaðar upplýsingar

Heiti

SkikiId

Gagnatýpa

int64

Dæmi

102030

Varðreglur (guards)

Skikanúmer verður að vera hærra en 0. value > 0