Landeign (L)¶
Skilgreining¶
Skilgreining hugtaks
Landeign er afmarkaður hluti af yfirborði jarðar sem vegna sérgreinds eignar- eða afnotaréttar, hagnýtingar, auðkenna eða landamerkja geta talist sjálfstæð eind.
Nánari lýsing
Landeign er grunnhugtak í fasteignaskráningu á Íslandi. Hún táknar afmarkaðan hluta af yfirborði jarðar sem telst sjálfstæð eind vegna eignarréttar, afnotaréttar eða landamerkja.
Landeign er grunnlagið sem öll fasteignaréttindi hvíla á — án mannvirkja eða annarra endurbóta. Hún er alltaf innan eins sveitarfélags og auðkennd með einkvæmu landeignanúmeri sem hefst á „L” og gildir á landsvísu.
Landeignir skiptast í þrjár tegundir:
Jörð (J) — Landbúnaðarland eða jörð utan þéttbýlis.
Lóð (L) — Afmarkað byggingarsvæði innan skipulagðs þéttbýlis.
Þjóðlenda (Þ) — Land í eigu ríkisins sem fellur ekki undir einkaeignarrétt.
Séreign og sameign landeignar eru skráðar sérstaklega í fermetrum. Séreign vísar til þess hluta sem tilheyrir einum eiganda, en sameign til sameiginlegs lands fleiri eigenda.
Skráning landeigna á Íslandi á sér langa sögu, allt frá landnámi. Upphaflega var byggt á örnefnum og munnlegum heimildum, en kerfið hefur þróast yfir í tölulegt auðkenniskerfi eftir því sem byggð og innviðir hafa stækkað.
Titilsíða Landnámabókar, prentuð í Skálholti 1688 af Hendrick Kruse. Fyrsta prentaða útgáfa Landnámabókar.¶
Frá landnámi hefur skráning landeigna verið forsenda fasteignaskráningar, sbr. t.d. Landnámabók. Með lögum um fjöleignarhús var heimild veitt til að skilgreina fleiri en eina fasteign á hverri landeign.
Auðkenni landeignar var lengst framan af heiti hennar, sbr. jarðarheiti eða heimilisfang. Með fjölgun landeigna, uppbyggingu þéttbýlis og þróun tölvukerfa skapaðist þörf fyrir auðkenningu sem væri einkvæm á landsvísu. Í dag er auðkenni landeignar landeignanúmer. Það skal birt með forskeytinu L á undan.
Landeign sem grunnandlag fasteignaréttinda er skilgreind í 1. tölul. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 6/2001 um skráningu og mat fasteigna, án mannvirkja eða annarra endurbóta sem gerðar hafa verið á henni, sbr. 2.-7. tölul. sömu greinar.
Landheiti er kerfisheiti sem er dregið af þeim staðföngum sem eru innan landeignarinnar.
Samkvæmt skilgreiningu fasteignaskrár afmarkast sveitarfélag af þeim landeignum sem innan þess eru, og þær mynda stofn til álagningar fasteignagjalda þess. Ef landeign nær yfir sveitarfélagamörk ber að skipta henni upp. Undantekning frá þessari reglu er sameignarland.
Dæmi um landeign eru leigulóð undir fjölbýlishús í þéttbýli, eignarlóð undir sumarhús í dreifbýli, bújörð í dreifbýli, eyðijörð í friðlandi Hornstranda og þjóðlenda.
Kröfur
Það þarf að vera hægt að gæðameta skráningu án þess að hreyfa við skráningunni sjálfri.
Það þarf að vera hægt að birta hvort landeign telst afmörkuð með fullnægjandi hætti í landeignaskrá.
Það þarf að vera hægt að gera greinarmun á birtri stærð séreignar og sameignar.
Það þarf að vera hægt að kalla fram kerfisheiti (landheiti).
Virkni
Fjöleign: segir til um hvort landeign sé fjöleign (já/nei).
Það þarf að vera hægt að sameina landeignir.
Það þarf að vera hægt að skipta landeign upp í fleiri landeignir.
Það þarf að vera hægt að sjá landeignir eins og þær voru á gefnum tímapunkti.
Það þarf að vera hægt að sjá uppruna landeignar á gefnum tímapunkti (ættartré).
Það þarf að vera hægt að sækja mælda stærð landeignar.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti hugtaks |
Landeign |
Skammstöfun hugtaks |
L |
Eigindi¶
Landeignanúmer¶
Skilgreining eigindis
Einkvæmt, upplýsingalaust auðkenni landeignar.
Nánari Lýsing
Aðallykill til að auðkenna landeign á einkvæman hátt.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti |
LandeignNr |
Stuttnefni |
LandNr |
Gagnatýpa |
|
Dæmi |
101234 |
Hópur |
Auðkenni |
Varðreglur (guards) |
Landeignanúmer verður að vera hærra en 0. |
Sveitarfélagsnúmer¶
Skilgreining eigindis
Sveitarfélagsnúmer sem tilgreinir í hvaða sveitarfélagi landeign er.
Nánari Lýsing
Tengir landeign við sveitarfélag.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti |
SvfSveitarfelagNr |
Stuttnefni |
SvfNr |
Gagnatýpa |
|
Dæmi |
TODO |
Hópur |
Auðkenni |
Varðreglur (guards) |
Sveitarfélagsnúmer verður að vera hærra en 0. |
Gerð landeignar¶
Skilgreining eigindis
Tegund landeignar: J (Jörð), L (Lóð), eða Þ (Þjóðlenda).
Nánari Lýsing
Gerð landeignar skilgreinir hvernig landeign er flokkuð í landeignaskrá. Þrjár gerðir eru í boði:
J – Jörð: Landeign sem telst jörð samkvæmt jarðalögum.
L – Lóð: Afmarkað landsvæði innan þéttbýlis eða skipulagðs svæðis.
Þ – Þjóðlenda: Land í eigu ríkisins sem fellur undir lög um þjóðlendur.
Gerðin hefur áhrif á hvaða reglur gilda um skráningu, eigendaskipti og afmörkun landeignar.
Gerð landeignar er skráð til að uppfylla ákvæði 11. gr. jarðalaga frá 2004 um viðhald jarðaskrár, þ.e. að fram komi upplýsingar um jarðir, jarðahluta, landspildur, lóðir og annað land.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti |
GerdFl |
Stuttnefni |
GerdFl |
Gagnatýpa |
|
Dæmi |
J |
Hópur |
Eiginleikar |
Varðreglur (guards) |
Gerð landeignar verður að vera J, L eða Þ. |
Notkun¶
Skilgreining eigindis
Samþykkt landnotkun sveitarfélags; gefur til kynna landbúnaðarstöðu vegna reglugerðar.
Nánari Lýsing
Notkun landeignar er skipulögð notkun hennar eins og hún er samþykkt af sveitarfélagi, helst með vísun í skipulagsreglugerð. Dæmi: eyðijörð, bílskúralóð.
Tilgangurinn er að tilgreina leyfilega notkun landeignar. Mikilvægast er að vita hvort landeign teljist til landbúnaðarsvæðis eða ekki, svo hægt sé að segja til um hvort lausn úr landbúnaðarnotum eigi við við ráðstöfun eignar.
Erfitt er að tryggja að skráð notkun haldist uppfærð, því skipulagðri notkun lands má breyta án þess að skráningin sé uppfærð samhliða. Í framtíðinni verður mögulega hægt að vensla skipulag við landeignir á grunni staðsetningar og fá hlutfallstölur, t.d. hversu stór hluti landeignar er ætlaður undir landbúnað, íbúðabyggð eða verslun og þjónustu.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti |
NotkunFl |
Stuttnefni |
NotkFl |
Gagnatýpa |
|
Dæmi |
TODO |
Hópur |
Eiginleikar |
Varðreglur (guards) |
Textareitur skal styðja fjöltyngdan texta og sérstafi. |
Séreign m²¶
Skilgreining eigindis
Skráð flatarmál séreignar í fermetrum. NULL ef óþekkt, 0 ef óskráð.
Nánari Lýsing
Skráning á flatarmáli séreignar landeignar.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti |
Sereign_m2 |
Stuttnefni |
SerM2 |
Gagnatýpa |
|
Dæmi |
1500.0 |
Hópur |
Flatarmál |
Sameign m²¶
Skilgreining eigindis
Skráð flatarmál sameignar í fermetrum. NULL ef óþekkt, 0 ef óskráð.
Nánari Lýsing
Skráning á flatarmáli sameignar landeignar.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti |
Sameign_m2 |
Stuttnefni |
SamM2 |
Gagnatýpa |
|
Dæmi |
500.0 |
Hópur |
Flatarmál |
Vensl¶
Landeign → Landeignarhluti¶
Skilgreining vensla
Landeign er samsett úr einum eða fleiri landeignarhlutum sem geta ekki verið til án hennar.
Tegund vensla: Samsetning (Composition)
Nánari lýsing
Landeign og landeignarhluti eru í samsetningarvenslum (composition) þar sem landeignarhluti getur ekki verið til án landeignar. Þegar landeign er afskráð eða sameinuð fellur landeignarhlutinn úr gildi.
Sérhver landeign hefur að lágmarki einn landeignarhluta. Landeignarhlutinn erfir sveitarfélagstengingu frá landeigninni og getur ekki tilheyrt öðru sveitarfélagi en landeignin.
Dæmi um notkun: Þegar jörð er skipt í lóðir heldur landeignin auðkenni sínu en nýir landeignarhlutar myndast fyrir hverja lóð.
Staðlaðar upplýsingar
Vensl (kind) |
|
Frá (source) |
Landeignaskra::Landeign |
Til (target) |
Landeignaskra::Landeignarhluti |
Landeign → Sveitarfelag¶
Skilgreining vensla
Sérhver landeign tilheyrir nákvæmlega einu sveitarfélagi úr umdæmi sveitarfélagaskrár.
Tegund vensla: Stefnutenging (Directed Association)
Nánari lýsing
Landeign veit hvaða sveitarfélagi hún tilheyrir.
Staðlaðar upplýsingar
Vensl (kind) |
|
Frá (source) |
Landeignaskra::Landeign |
Til (target) |
Sveitarfelagaskra::Sveitarfelag |
Stefna (navigability) |
Landeign → Sveitarfelag |
Landeign → Skiki¶
Skilgreining vensla
Landeign er skipt upp í einn eða fleiri skika sem skilgreina stærð, staðsetningu og afmörkun hennar.
Tegund vensla: Tenging (Association)
Nánari lýsing
Landeign veit ekki hvað hún er stór né hvar hún er staðsett, en getur spurt kerfið hvaða skikar tilheyra sér, hvað þeir eru stórir og hver afmörkun þeirra er. Skiki getur tilheyrt fleiri en einni landeign, en þá er um sameignarskika að ræða sem tilheyrir fleiri landeignum.
Landeign hefur alltaf að minnsta kosti einn skika:
Eignarmörk ekki afmörkuð: landeignin hefur einn núllskika.
Eignarmörk afmörkuð að hluta: landeignin hefur núllskika og aðra skika.
Eignarmörk afmörkuð að fullu: landeignin hefur eingöngu skika.
Staðlaðar upplýsingar
Vensl (kind) |
|
Frá (source) |
Landeignaskra::Landeign |
Til (target) |
Landeignaskra::Skiki |
Stefna (navigability) |
Skiki → Landeign |
Landeign → Stadfang¶
Skilgreining vensla
Sérhver landeign á nákvæmlega eitt aðalstaðfang sem er sjálfgefið staðfang hennar.
Tegund vensla: Tenging (Association)
Staðlaðar upplýsingar
Vensl (kind) |
|
Frá (source) |
Landeignaskra::Landeign |
Til (target) |
Stadfangaskra::Stadfang |
Stefna (navigability) |
Landeign → Stadfang · Stadfang → Landeign |
Landeign → Stadfang¶
Skilgreining vensla
Landeign getur haft eitt eða fleiri aukastaðföng sem vísa til hennar en eru ekki sjálfgefin.
Tegund vensla: Stefnutenging (Directed Association)
Staðlaðar upplýsingar
Vensl (kind) |
|
Frá (source) |
Landeignaskra::Landeign |
Til (target) |
Stadfangaskra::Stadfang |
Stefna (navigability) |
Stadfang → Landeign |
Hugtakalíkön