Hugtakalíkön¶
Hugtalíkan er grunnheimild fyrir skilgreiningar tiltekins fagsviðs sem viðhaldið er af sérfræðingum fagsviðsins.
Markmið¶
Markmið þess er að tryggja sameiginlegan skilning meðal sérfræðinga, tæknifólks og notenda. Líkönin innihalda skilgreiningar á hugtökum, eigindum, venslum og ferlum á faglegu en almennu tungumáli, óháð tæknilegri útfærslu.
Hugtakalíkan er útgáfustýrt skjal sem er er aðgengilegt öllum hagsmunaðilum.
Hugtakalíkan samanstendur af:
Hugtök — lykilfyrirbæri umdæmisins, t.d. Landeign, Bygging, Staðfang
Eiginleikar — mælanlegir eða lýsandi þættir hvers hugtaks, t.d. Flatarmál, Heimilisfang, Dagsetning
Vensl — tengsl milli hugtaka, t.d. samanstendur af, erfir, vísar í
Ferlar — ferlar sem snúast um meðhöndlun hugtaka
Notkun hugtakalíkana¶
Skilgreiningar sem settar eru fram í hugtakalíkönum eru grunnheimildir. Þær ættu alltaf að liggja til grundvallar við framleiðslu annarra afurða. Þegar breyta þarf lögum, reglugerðum, handbókum, gagnaskemum, vefþjónustum, viðmóti þá ættu þær breytingar að falla að hugtakalíkani. Hugtakalíkan er útgáfustýrt lifandi skjal sem er uppfært eftir þörfum.
Hugtakalíkön