Mat¶
Umdæmi Mats er sameiginlegt umdæmi sem nær yfir grunnhugtök mats. Hugtök umdæmisins eru óhlutbundin: þau lýsa því sem öllum matsaðferðum er sameiginlegt, óháð því hvað er metið og með hvaða aðferð.
Forsjá umdæmisins og hugtaka þess er sameiginleg. Umdæmi Fasteignamats og Umdæmi Brunabótamats erfa hugtök Umdæmis Mats og bæta aðeins við því sem þeirra eigin matsaðferðir krefjast.
Hugtakalíkan Mats afmarkar viðfangsefni umdæmisins og skilgreinir þau grunnhugtök og vensl sem falla undir það: Matsaðferð, Mat, Matsforsenda, Matseining og Matsgerð.
Umdæmi innan Umdæmis Mats¶
Innan Umdæmis Mats eru umdæmi sem hvert beitir sínum matsaðferðum. Hvert þeirra er bundið innan Umdæmis Mats og erfir hugtök þess. Umdæmin skarast: matsforsenda í einu umdæmi getur geymt mat úr öðru.
Umdæmi Brunabótamats¶
Brunabótamat er mat á mannvirki til brunatryggingar. Endurstofnsverð, kostnaður við að byggja mannvirki að nýju, er hluti af brunabótamati. Endurstofnsverð er reiknað með því að stilla af hrá- og frágangsmódel. Auk matsins skilar reikniverk brunabótamats förgunarkostnaði og byggir á byggingarvísitölu.
Matsforsenda í fasteignamati getur einnig geymt endurstofnsverð.
Matsaðferðir umdæmis Brunabótamats eru meðal annars kostnaðarmat, sem reiknar endurstofnsverð, innslegið endurstofnsverð og brunabótamat. Allar skila þær mati í ISK. Matsandlag þeirra er byggingaráfangi í heild sinni, og brunabótamat er sundurliðað á rekstrareiningar byggingaráfangans.
Dæmi um matsaðferðir við útreikning endurstofnsverðs: kostnaðarmat, vélmat, handmat, innslegið mat og útihúsamat.
Dæmi um matsaðferðir við brunabótamat: mat reiknað samkvæmt formúlu HMS, innslegið mat dómkvaddra matsmanna eða matsmanna HMS og yfirnefndarmat.
Umdæmi Fasteignamats¶
Fasteignamat er mat á verðgildi fasteignar. Fasteignamat er ekki ein matsaðferð heldur hópur matsaðferða: íbúðamat, atvinnumat, sumarhúsamat, markaðsleiðrétt kostnaðarmat og verðflokkamat. Íbúðamat reiknar grunnmat út frá eiginleikum eignarinnar og margfaldar það með matssvæðisstuðli, undirmatssvæðisstuðli og skoðunarstuðli.
Fasteignamat byggir á þremur aðferðafræðum: markaðsaðferð, tekjuaðferð og kostnaðaraðferð.
Umdæmi Lífsferilsgreiningar¶
Lífsferilsgreining metur umhverfisáhrif mannvirkis yfir líftíma þess og skilar mati í kolefnisígildum (kgCO2e) en ekki krónum. Umdæmi Lífsferilsgreiningar hefur ekki enn mótast og er utan umfangs að sinni.
Hugtakalíkön