Leiguskrá

Leiguskrá er rafrænt gagnasafn um húsaleigusamninga á Íslandi sem rekið er af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS).

Skráning húsaleigusamninga er viðfangsefni sem snýr að því að viðhalda gagnasafni um leigusamninga á íbúðarhúsnæði og skilgreina þá ferla sem nauðsynlegir eru til að tryggja réttleika gagna.

Hugtakalíkan Leiguskrár afmarkar viðfangsefni Leiguskrár og skilgreinir þau hugtök, eigindi og vensl sem falla undir umdæmi hennar.

Leiguskrá inniheldur upplýsingar um húsaleigusamninga, aðila þeirra (leigusala og leigutaka), hið leigða húsnæði og umsamið endurgjald. Gögnin nýtast við stefnumótun í húsnæðismálum, til að fylgjast með þróun leiguverðs og lengd leigusamninga, og sem grundvöllur fyrir afgreiðslu húsnæðisbóta.

Kerfið sinnir eftirfarandi meginverkefnum:

  • Skráning samninga — móttaka og skráning rafrænna og pappírssamninga.

  • Auðkenning hins leigða — tenging samninga við notkunareiningu, rekstrareiningu eða rýmiseiningu í Mannvirkjaskrá þegar við á, eða lýsing með frjálsum texta þegar formleg tilvísun er ekki til staðar.

  • Eigindabreytingar — uppfærslur á samningsupplýsingum og upplýsingum um aðila.

  • Lokun samninga — skráning um lok leigusambands.

Frá og með 1. janúar 2026 ber öllum leigusölum á íbúðarhúsnæði að skrá húsaleigusamninga sína í Leiguskrá HMS innan 30 daga frá undirritun. Áður gilti skráningarskyldan eingöngu fyrir leigusala sem leigja út fleiri en tvær íbúðir.

Þegar samningar eru gerðir á rafrænu formi á vettvangi HMS skráist samningurinn sjálfkrafa í Leiguskrá þegar allir aðilar hafa undirritað hann. Pappírssamninga má senda til skráningar á netfangið hms@hms.is.

Leiguskrá er samstarfsverkefni leigusala, leigutaka, þjónustuaðila og opinberra aðila. Það er hlutverk HMS að leiða þróun Leiguskrár, eigindaskráningu hennar, skráningarferla og viðmót skráningaraðila til uppfærslu.

Hugtök