Sveitarfelagaskrá¶
Markmið sveitarfélagaskrár er að viðhalda gagnasetti til að skilgreina hvaða sveitarfélög eru til í landinu, auðkenni þeirra og heiti.
Um lagalega skilgreiningu sveitarfélaga, sjá sveitarstjórnarlög nr. 138/2011.
Sveitarfélag er grunnur fasteignaskrár, sbr. lög um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001. Það eru sveitarfélög sem skrá fasteignir og mengi fasteigna myndar sveitarfélög.
Sveitarfélög eru jafnframt grunnur íbúaskráningar. Ef ekki er hægt að skera úr um lögheimili einstaklings er heimilt að skrá hann til lögheimilis í sveitarfélagi án tilgreinds heimilisfangs, sbr. lög um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018.
Sveitarfélög annast nafngiftir staðvísa, hafa umsjón með og bera ábyrgð á skráningu staðfanga innan staðarmarka sinna, sbr. reglugerð um skráningu staðfanga nr. 577/2017.
Sveitarfélagamörk og heimildir um þau, staða 21. febrúar 2020.¶
Almannaskrá, staðfangaskrá, landeignaskrá, fasteignaskrá og fyrirtækjaskrá vísa allar í sveitarfélagaskrá.¶
Hugtakalíkön