Merkjalýsing (MEL)

@startuml
!include /build/docs/_plantuml_styles/concept_name.iuml
class "Merkjalýsing\n<i>Merkjalysing (MEL)</i>"
@enduml

Skilgreining

Skilgreining hugtaks

Mæliblöð skilgreina með hnitum legu og stærð landeigna, skikamörk eigna og umráðasvæða eða legu einstakra mælipunkta.

Nánari lýsing

Merkjalýsing er formleg heimildir sem sýnir legu, stærð landeigna, skikamörk eigna og staðsetningu einstakra mælipunkta. Merkjalýsing getur einnig innihaldið byggingarsvæði og kvaðir á borð við veitukvaðir eða samþykktar byggingar.

Merkjalýsing skal vera sjálfstætt skjal sem sýnir veruleikann eins og hann er á hverjum tíma án þess að þurfa viðbótarupplýsingar.

Mæliblað Tæknideildar Kópavogs fyrir Kársnesbraut 95-105 og Holtagerði 46-56

Dæmi um mæliblað: Kársnesbraut 95-105 og Holtagerði 46-56, Tæknideild Kópavogs, mælikvarði 1:500, 4. febrúar 2020.

Innihald merkjalýsingar

Merkjalýsing inniheldur að lágmarki:

  • Hnitaskrá — hnit allra hornmarka og mælipunkta.

  • Mælipunktsupplýsingar — tilvísun í mælipunkta sem notuð voru.

  • Yfirlitskort — kort með skýringum og bakgrunnsupplýsingum.

  • Aðgreiningu — skýr aðgreining á nýjum og eldri merkjalínum.

Gott er að eftirfarandi komi fram á merkjalýsingum og mæliblöðum sem skilað er inn vegna nýskráningar eða breyttrar skráningar landeigna. Upplýsingarnar taka mið af verklagsreglum Landmælinga Íslands fyrir innmælingar og útsetningar á lóða- og landamerkjum og krefjast því ekki aukavinnu af hálfu mælingamanns eða hönnuðar:

  • Nafn sveitarfélags ásamt titli eða verkheiti.

  • Blaðsíðutal, heildarfjöldi blaðsíðna og prentstærð frumrits.

  • Pláss fyrir stimpil og undirritun sveitarfélags, HMS og eftir atvikum landeigenda.

  • Hnitalisti ásamt upplýsingum um áætlaða nákvæmni, aðferðafræði, viðmið, dagsetningu og ábyrgð mælinga.

  • Upplýsingar um fastmerki, ef þau eru notuð við mælingar.

  • Yfirlitskort, mælikvarði, norðurör og kortskýringar.

  • Upplýsingar um bakgrunnsgögn og kortagerð.

  • Athugasemdir, útgáfustýring og annað sem hönnuður vill koma á framfæri.

  • Uppdráttur þar sem ný eignamörk eru aðgreind frá eldri eignamörkum með mismunandi stíl.

  • Númer hnita, lengd lína og radíus ef um bogadregnar línur er að ræða.

  • Æskilegt er að birta jafnframt hæðarlínur, útlínur mannvirkja, vegi, vatnafar og helstu örnefni.

Þegar mörk liggja meðfram náttúrulegum landkostum, svo sem ám, vötnum eða vatnaskilum, þarf ekki að merkja alla punkta — einungis upphafs-, enda- og skurðpunkta, enda sé kenni­leitið skilgreint í meðfylgjandi texta.

Ekki þarf að hnitsetja eignamörk í sjó eða vötnum sem eru meira en 230 m breið, sbr. 4. gr. vatnalaga nr. 15/1923, heldur einungis setja punkta í flæðarmálið þar sem eignamörkin skera vatnsflötinn. Teikna þarf strandlínu eins og hún er notuð við flatarmálsmælingu. Taka þarf sérstaklega fram þær eyjar, hólma eða sker sem fylgja landeign, eða fylgja henni ekki ef tengsl virðast augljós.

Staðlar

Merkjalýsingar eru yfirleitt á A4-sniði eða smærra (aldrei stærri en A3), á hvítum grunni og með skýrri letursetningu til að tryggja lesanleika og varðveislu gagna.

  • Við gerð merkjalýsingar ættu hönnuðir ávallt að hafa skýrleika, forsendur og uppruna að leiðarljósi.

  • Merkjalýsing á ekki að glata upplýsingum við ljósritun. Því er gott að deyfa eða sleppa loftmynd og hafa ávallt hvítan bakgrunn undir texta.

  • Ekkert mælir gegn því að mæliblöð séu fleiri en ein síða, en þá þarf að tölusetja blaðsíðurnar.

Staðlaðar upplýsingar

Heiti hugtaks

Merkjalysing

Skammstöfun hugtaks

MEL

Eigindi

@startuml
!include /build/docs/_plantuml_styles/concept_properties.iuml

class "Merkjalýsing" {
-- <color:#6b7a90><size:12>Auðkenni</size></color> --
  <color:$BULLET_COLOR>$BULLET_CHAR</color> **Merkjalýsingarnúmer**  [key, unique, opaque, derived, auto, required, system]
  <color:transparent>$BULLET_CHAR</color> MerkjalysingNr : int64 
-- <color:#6b7a90><size:12>Efni</size></color> --
  <color:$BULLET_COLOR>$BULLET_CHAR</color> **Titill**  [nullable]
  <color:transparent>$BULLET_CHAR</color> Titill : string 

  <color:$BULLET_COLOR>$BULLET_CHAR</color> **Hönnuður**  [nullable]
  <color:transparent>$BULLET_CHAR</color> Honnudur : string 

  <color:$BULLET_COLOR>$BULLET_CHAR</color> **Dagsetning útgáfu**  [nullable]
  <color:transparent>$BULLET_CHAR</color> DagsetningUtgafu : datetime 
}
@enduml


Merkjalýsingarnúmer

Skilgreining eigindis

Einkvæmt, upplýsingalaust auðkenni merkjalýsingar.

Nánari Lýsing

Aðallykill til að auðkenna merkjalýsingu á einkvæman hátt.

Staðlaðar upplýsingar

Heiti

MerkjalysingNr

Stuttnefni

Melnr

Gagnatýpa

int64

Dæmi

5152

Hópur

Auðkenni

Varðreglur (guards)

Merkjalýsingarnúmer verður að vera hærra en 0. value > 0


Titill

Skilgreining eigindis

Verkheiti merkjalýsingar.

Nánari Lýsing

Auðkennir verkefnisstaðsetningu og umfang. Dæmi: Hlíðarendi. Afmörkun íbúðarhúss, útihúsa og vélaverkstæðis.

Staðlaðar upplýsingar

Heiti

Titill

Gagnatýpa

string

Dæmi

Land við Grindavík

Hópur

Efni

Varðreglur (guards)

Textareitur skal styðja fjöltyngdan texta og sérstafi.


Hönnuður

Skilgreining eigindis

Sá sem gerði merkjalýsinguna.

Nánari Lýsing

Auðkennir hönnuð/landmælingamann. Allar merkjalýsingar hafa hönnuð, og ef spurningar vakna út frá merkjalýsingunni er gott að vita hver hann er.

Staðlaðar upplýsingar

Heiti

Honnudur

Gagnatýpa

string

Dæmi

Jón Jónsson

Hópur

Efni

Varðreglur (guards)

Textareitur skal styðja fjöltyngdan texta og sérstafi.


Dagsetning útgáfu

Skilgreining eigindis

Dagsetning sem merkjalýsingin var gefin út.

Nánari Lýsing

Skráir útgáfudag merkjalýsingar.

Staðlaðar upplýsingar

Heiti

DagsetningUtgafu

Gagnatýpa

datetime

Dæmi

2009-03-19

Hópur

Efni

Vensl


Merkjalysing → Landeign

Skilgreining vensla

Merkjalýsing skjalfestir mörk landeigna og staðsetningu einnar eða fleiri landeigna.

Tegund vensla: Tenging (Association)

Nánari lýsing

Ein merkjalýsing getur náð yfir margar landeignir og ein landeign getur verið skjalfest í mörgum merkjalýsingum á tímans rás.

Staðlaðar upplýsingar

Vensl (kind)

Tenging (Association)

Frá (source)

Landeignaskra::Merkjalysing 0..*
Merkjalýsing

Til (target)

Landeignaskra::Landeign 1..*
Landeign

Stefna (navigability)

Merkjalysing → Landeign · Landeign → Merkjalysing

@startuml
!include /build/docs/_plantuml_styles/relationship.iuml



"Merkjalysing" "0..*\nMerkjalýsing" <----> "1..*\nLandeign" "Landeign"
@enduml