Sveitarfélag (SVF)¶
Skilgreining¶
Skilgreining hugtaks
Sveitarfélag er sjálfstætt stjórnsýslustig með ákveðin staðarmörk sem ráðast af útmerkjum þeirra fasteigna sem innan þeirra liggja.
Nánari lýsing
Sveitarfélag er grunnur fasteignaskrár og íbúaskráningar. Sveitarfélög skrá fasteignir og mengi fasteigna myndar sveitarfélög. Einstaklingar eru skráðir til lögheimilis í sveitarfélagi ef aðrar upplýsingar um búsetu liggja ekki fyrir, þ.e. íbúðarnúmer og/eða staðfang.
Sveitarfélög á Íslandi voru 73 í upphafi árs 2020. Sameiningar sveitarfélaga sem hafa færri en 1000 íbúa leiða til fækkunar þeirra.
Tillaga Samtaka atvinnulífsins að nýrri sveitarfélagaskipan árið 2016.¶
Sveitarfélag liggur til grundvallar skráningu margra annarra hluta, s.s. landeigna, fasteigna, einstaklinga og póstnúmera, en veit sjálft ekki af þeim.
Kröfur
Það þarf að vera hægt að skoða sveitarfélagaskipan í sögulegu samhengi við önnur gögn, s.s. íbúaskrá og fasteignir.
Takmarkanir
Sveitarfélag veit ekki afmörkun sína. Afmörkun sveitarfélaga er viðhaldið af Landmælingum Íslands, og að sækja hana er ekki innbyggð virkni í sveitarfélagaskrá.
Virkni
Það þarf að vera hægt að sameina sveitarfélög.
Það þarf að vera hægt að skipta sveitarfélagi upp í eitt eða fleiri sveitarfélög.
Það þarf að vera hægt að sjá sveitarfélagaskipan á gefnum tímapunkti.
Það þarf að vera hægt að sjá uppruna sveitarfélags á gefnum tímapunkti (ættartré).
Staðlaðar upplýsingar
Heiti hugtaks |
Sveitarfelag |
Skammstöfun hugtaks |
SVF |
Eigindi¶
Sveitarfélagsnúmer¶
Skilgreining eigindis
Einkvæmt, upplýsingalaust auðkenni sveitarfélags. Alltaf fjórir stafir, þannig að Reykjavík er 0000.
Nánari Lýsing
Aðallykill til að auðkenna sveitarfélag á einkvæman hátt og vísa í tiltekið sveitarfélag.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti |
SveitarfelagNr |
Gagnatýpa |
|
Dæmi |
0000 |
Varðreglur (guards) |
Sveitarfélagsnúmer má ekki vera neikvætt. |
Hugtakalíkön