Umdæmi

Umdæmi er afmörkun á viðfangsefni þar sem ábyrgð, hlutverk, ferlar og hugtök eru skilgreind. Hugtakalíkan afmarkar umdæmi og greinir frá innihaldi þess.


alt text

Afmörkun viðfangsefnis

Umdæmi nær yfir ákveðið viðfangsefni sem er afmarkað á grundvelli laga, reglugerða, stefnu eða samþykktra vinnubragða. Hugtakalíkan inniheldur lýsingu á bakgrunni og þeim forsendum liggja að baki umdæmisins.

Skilgreining hugtaka, ferla og gagna

Innan umdæmis eru lykilhugtök, ferlar og reglur um meðhöldun gagna sameiginlega skilgreind, skjöluð og viðurkennd. Hugtök eru skilgreind innan hvers umdæmis og gögn varðveitt og viðhaldið innan þess — einn uppruni gagna. Tengingar á milli umdæma eru í oft í gegn um almennustu hugtökin en notkun á sérhæfðari hugtökum takmarkast oft við eitt umdæmi.

Ábyrgð og eignarhald

Ákveðnir aðilar eru eigendur umdæmis og bera ábyrgð á gæðum þess, réttleika og varðveislu gagna.

Samskipti og samningar milli umdæma

Tengsl milli umdæma eru ákveðin í samkomulagi milli eigenda þeirra, þar sem fram kemur hvernig samskipti og gagnaskipti eiga að fara fram. Innan umdæmis er samræmi gagna almennt tryggt með sterku færslusamræmi (e. transactional consistency), en milli umdæma er miðað við lokasamræmi (e. eventual consistency) — þ.e. gögn í mismunandi umdæmum samræmast að lokum, en ekki endilega samstundis.

alt text

Hlutverk og ábyrgð eiganda umdæmis

Eigandi ber ábyrgð á verkefnum innan umdæmis eða úthlutar þeim áfram til viðeigandi aðila.

  • Skilgreina viðfangsefni og mörk umdæmisins.

  • Skilgreina og viðhalda hugtökum, reglum og ferlum innan umdæmis.

  • Tryggja gæði, réttleika og varðveislu gagna innan umdæmis.

  • Samræma samskipti og gagnaskipti við önnur umdæmi samkvæmt samkomulagi.

  • Tryggja að starfsemi innan umdæmis samræmist lögum, reglugerðum og stefnu.

  • Stýra breytingum innan umdæmis og meta áhrif þeirra á önnur umdæmi.

Ávinningur

Markmiðið með því að skilgreina umdæmi er að tryggja betra skipulag, skýrari ábyrgð, skilvirkari vinnubrögð, hraðari þróun og meiri réttleika.

Skýr ábyrgð

Auðvelt að vita hver ber ábyrgð á hverju.

Betra skipulag

Flókin starfsemi er brotin niður í viðráðanlegar einingar.

Sameiginlegt tungumál

Allir innan umdæmis nota sömu hugtök og skilja þau eins. Gögn samræmast hugtökum sem skilgreind eru í hugtakalíkani.

Sjálfstæði

Breytingar innan umdæmis hafa minni áhrif á önnur umdæmi.

Skýr skil

Tengingar milli umdæma fara í gegnum skýr skil og samninga. Einn uppruni gagna. Samræmi í hugtakanotkun í gagnamiðlun, gagnaskemum, vefþjónustum, gagnaskemum og öðrum tæknilegum afurðum.

Umdæmi

UmdæmiLýsingÚtgáfaStaðaHugtakalíkanUmráðandi
LandeignaskráSkráning landeigna, eignarmarka og landamerkja1.0.0Í vinnsluSkjölun YAML ExcelHMS
SkoðanirSameiginleg grunnhugtök skoðana1.0.0Í vinnsluSkjölun YAML ExcelHMS
MannvirkjaskráSkráning mannvirkja og eiginleika þeirra1.0.0Í vinnsluSkjölun YAML ExcelHMS
StaðfangaskráSkráning staðfanga, heimilisfanga og hnitsetninga1.0.0Í vinnsluSkjölun YAML ExcelHMS
SveitarfélagaskráSkráning sveitarfélaga og stjórnsýslueininga1.0.0Í vinnsluSkjölun YAML ExcelHMS
FasteignamatSkráning og mat á fasteignum1.0.0Í vinnsluSkjölun YAML ExcelHMS
BrunavarnirSkráning og eftirlit með brunavörnum1.0.0Í vinnsluSkjölun YAML ExcelHMS
RafmagnsöryggiSkráning og eftirlit með rafmagnsöryggi1.0.0Í vinnsluSkjölun YAML ExcelHMS
MatSameiginleg grunnhugtök mats1.0.0Í vinnsluSkjölun YAML ExcelHMS
FasteignaréttindiSkráning réttinda tengdra fasteignum—Í biðHMS
KaupskráSkráning fasteignakaupa—Í biðHMS
LeiguskráSkráning húsaleigusamninga1.0.0Í vinnsluSkjölun YAML ExcelHMS
ÞinglýsingarÞinglýsing skjala og réttinda—Í biðSýslumenn
ÁlagningarskráSkráning fasteignagjalda og álagningar—Í biðSveitarfélög
HúsnæðismálMál tengd húsnæðisþjónustu—Í biðHMS
BrunabótamatMat og skráning brunabótagreiðslna—Í biðHMS
Löggildinga og starfsréttinda skráSkráning löggildinga og starfsréttinda—Í biðHMS
PóstnúmeraskráSkráning póstnúmera og póststaða—Í biðByggðastofnun
EinstaklingaskráSkráning einstaklinga og lögheimila—Í biðÞjóðskrá
FyrirtækjaskráSkráning fyrirtækja og lögaðila—Í biðRSK

Þegar HMS er notandi viðfangsefnis en ekki umráðandi þess og umráðandi er ekki til staðar eða hugmyndafræði viðfangsefnis er ekki aðgengileg eða skýr, áskilur HMS sér rétt til að skilgreina umdæmi og hugtakalíkan þess á eigin forsendum í samræmi við þarfir og skilning HMS — með því markmiði að uppbygging upplýsingakerfa HMS byggi á þekktum forsendum og framleiðsla afurða sé skilvirk.