Landeignaskrá¶
Landeignaskrá er gagnasafn sem inniheldur upplýsingar um landeignir og afmörkun þeirra.
Landeignaskráning er viðfangsefni sem sem snýr að því að viðhalda gagnasafni um landeignir á Íslandi og skilgreina þá ferla sem nauðsynlegir eru til að tryggja réttleika gagna.
Hugtakalíkan Landeignaskrár afmarkar viðfangsefni Landeignaskrár og skilgreinir þau hugtök, eigindi og vensl sem falla undir umdæmi Landeignaskrár.
Landeignaskrá inniheldur upplýsingar um landeignir og afmörkun þeirra.
Kerfið sinnir fjórum meginverkefnum:
Uppmæling — landmælingar og hnitaskráning.
Eigindabreyting — breytingar á eiginleikum landeigna.
Uppskipting — skipting landeigna í smærri einingar.
Samruni — sameining landeigna.
Landeignaskráning byggir á uppmælingu lands.¶
Upplýsingar berast frá skipulags- og byggingarfulltrúum sveitarfélaga, landeigendum og umboðsmönnum þeirra svo sem hönnuðum.
Nær allar breytingar á skráningu krefjast staðfestingar sýslumanns. Uppskipting lands og afnám landbúnaðarnota krefjast heimildar ráðuneytis.
Landeignaskrá er því samstarfsverkefni margra ólíkra aðila. Það er hlutverk HMS að leiða það samstarf, þróa landeignaskrá, eigindaskráningu hennar, skráningarferla og viðmót einstakra skráningaraðila til uppfærslu.
Grannfræði landeignaskrár. Landeign samanstendur af skikum. Skikaflötur afmarkast af merkjum (eignamörkum) milli hornmarka, og merki geta haft millipunkta. Hornmark og millipunktur eru mælipunktar með hnit og nákvæmni, og skekkjumörk fylgja hverju merki.¶
Kröfur
Söguskráning er mjög mikilvæg landeignaskráningu. Í sumum tilfellum er saga einstakra landeigna enn óþekkt, en hægt að rannsaka hana og varpa ljósi á hvernig þær hafa þróast í tíma og rúmi. Þá sögu þarf að vera hægt að setja inn í skráninguna jafnóðum og hún kemur í ljós.
Hugtakalíkön