Matseining (ME)¶
Skilgreining¶
Skilgreining hugtaks
Matseining er eining sem reiknar og varðveitir mat fyrir tiltekið matsandlag samkvæmt tiltekinni matsaðferð.
Nánari lýsing
Matseining varðveitir niðurstöðu matsútreiknings: matið, frekari niðurstöður sem fylgja því og matsdagsetningu. Hún þekkir þær einingar og þær matsforsendur sem notaðar eru sem inntak í reikniverk matsaðferðar. Matseining sækir þær matsforsendur sem nauðsynlegar eru til að reikna mat og beitir reikniverki matsaðferðar til að reikna mat út frá þeim. Matseining á matsforsendur sínar. Hún getur einnig reiknað mat með staðgengilsforsendum í stað eigin matsforsendna, án þess að breyta þeim eða vista matið. Eftir atvikum má áætla mat út frá framtíðarbreytum eins og byggingarstigi og vísitölu. Athugið að hér er hugtakið matseining endurnýtt í annarri merkingu en áður hefur verið gert.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti hugtaks |
Matseining |
Skammstöfun hugtaks |
ME |
Eigindi¶
Kerfisauðkenni¶
Skilgreining eigindis
Kerfisauðkenni matseiningar.
Nánari Lýsing
Innri lykill.
Staðlaðar upplýsingar
Heiti |
MatseiningId |
Stuttnefni |
MeId |
Gagnatýpa |
|
Dæmi |
23456 |
Varðreglur (guards) |
Upplýsingalaust auðkenni. Heiltala > 0 |
Vensl¶
Matseining → Matsandlag¶
Skilgreining vensla
Matseining reiknar mat fyrir eitt tiltekið matsandlag.
Tegund vensla: Stefnutenging (Directed Association)
Nánari lýsing
Matsandlag getur verið metið af mörgum matseiningum, eina fyrir hverja matsaðferð.
Staðlaðar upplýsingar
Vensl (kind) |
|
Frá (source) |
Mat::Matseining |
Til (target) |
|
Stefna (navigability) |
Matseining → Matsandlag · Matsandlag → Matseining |
Matseining → Matsaðferð¶
Skilgreining vensla
Matseining er í tiltekinni matsaðferð.
Tegund vensla: Stefnutenging (Directed Association)
Nánari lýsing
Matsaðferð er beitt í gegnum matseiningar.
Staðlaðar upplýsingar
Vensl (kind) |
|
Frá (source) |
Mat::Matseining |
Til (target) |
|
Stefna (navigability) |
Matseining → Matsaðferð · Matsaðferð → Matseining |
Matseining → Matsforsenda¶
Skilgreining vensla
Matseining á sínar matsforsendur.
Tegund vensla: Samsetning (Composition)
Nánari lýsing
Matsforsenda er notuð í reikniverki matseiningar og tilheyrir einni matseiningu. Sé matseiningu eytt er matsforsendum hennar eytt.
Staðlaðar upplýsingar
Vensl (kind) |
|
Frá (source) |
|
Til (target) |
Mat::Matsforsenda |
Matseining → Mat¶
Skilgreining vensla
Matseining varðveitir það mat sem hún reiknaði síðast.
Tegund vensla: Samsetning (Composition)
Nánari lýsing
Matseining á ekkert mat fyrir fyrsta útreikning, og hver útreikningur kemur í stað fyrra mats.
Staðlaðar upplýsingar
Vensl (kind) |
|
Frá (source) |
|
Til (target) |
Mat::Mat |
Hugtakalíkön